Betri er ein Kanína í bala enn Þrjár í rúmmi
12.10.2006 15:07:22 / heilei

Hætt!

Þessi síða er hætt. Farið á www.heilei.bloggar.is og ég yrði þakklát ef þið minduð breyta linkunum á síðunum ykkar:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 19:06:28 / heilei

Nýja talvan!!!

Já gott fólk ég er búin að fá tölvuna mína! Loksins! enn eg kann bara ekki neitt á hana:S Ég rétt náði að drulla netinu ein upp og ná í msn enn meira get ég ekki.. engin forrit og ég kann ekki að ná í torrent eða það rugl, svoleiðis að það verður alveg nóg fyrir Pésa að gera í kvöld hoho:P

Annars er ósköp fátt að frétta, skólinn er fínn. Busunin skemmtileg, ekki neita ég því að geta spriklað um allan skólann í hvítum sokkabuxum með bleiju og gulan gogg! Hvað þá að borða rúgbrauð með rjóma og syngja hesta Jóa hvað eftir annað:P Svo á föstudaginn var busaparty-ið okkar sem var bara fínt, ég og Ragga og Unnur fórum með mömmunni okkar í 4.bekk haha skondið, enn já svo var spjallað, dansað, sungið, drukkið og bara haft gaman og skellt sér svo í Sjallann seinna um kvöldið á Dr.Myster og Mr. Handsome. Það var svolítið um sýrutónlist og þeir voru alveg útúr heiminum þarna uppi á sviði, enda fékk maður nóg af hveiti og vatni yfir sig þarna um kvöldið:P

Annars fór helgin í það mesta að læra, lítur út fyrir að ég geri varla annað núna þessa dagana, að vísu fengum við smá breik núna í dag, engin heimavinna í fél 103 enn samt sem áður er alveg nóg að gera;) Enn ég sé sko ekki eftir því að hafa farið í MA:haha:

Vá það munar ekkert smá miklu að geta bara verið í tölvunni hérna fyrir framan sjónvarpið og legið uppí sófa á meðan!! að ég skildi ekki hafa gert þetta fyrr:P

Melrose Place að byrja!

-Halla is out;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 18:50:22 / heilei

Græt úr mér augun!!!

Þetta er hneyksli! Nú er skólinn settur, ég er orðinn MA-ingur í húð og hár. Busun á þriðjudaginn eða "busun" þetta verður vonandi ekkert í líkingu við VMA busunina:evil: Enn allavega þá keypti ég mér nokkrar bækur og það var góður 35 þús kall TAKK FYRIR!! Og enn er ekki allt búið!!! Ég græt frá mér vitið!!!! Enn á ég eftir að fjárfesta í tölvu, bílprófi og tattooi!! Þetta er stór biti sem ég næ ekki að kyngja! Ég hef grafið mína eigin gröf! Hætt að vinna og enginn peningur á leiðinni í vasa minn:cry:

Þvílíka vittleysan að draga þessa skólabyrjun svonna á langinn! Á þriðjudaginn fór ég í viðtal, í dag skólasettning, þetta tók einn og hálfan tíma samanlagt! Hálftími fór í viðtalið og klukkutími í skólasettninguna. Á morgun mæti ég klukkan 9 og hitti bekkinn minn og fer heim klukkan 10, á föstudaginn er skóli samkvæmt stundarskrá! Þetta er rugl! afhvejru ekki að hafa viðtalið og skólasettninguna samdægurs og hafa síðan bara skóla á föstudaginn!!! Held að ég verði skólameistarinn á næstu önn til að geta bætt úr svona rugli!

Ætli maður þurfi svo ekki að leggjast á gólfið og taka framm gömul bækur og blöð og fara að henda því og taka til, kanski ég sópi fyrst yfir gólfið, eða taki bara til yfir höfuðið þar sem ég þarf að henda í þvottavél og taka föt og handklæði upp af gólfinu, kanski fara niður með eitt eða tvö glös, ég ætla að kaupa mér húshjálp! ó nei ég hef ekki efni á því útaf þessu hellvítis peningaveseni!!

Ætli maður leggist þá ekki bara í skítinn á gólfinu og taki framm einhver nokkur blöð til að kveikja í og halda á sér hita, spara rafmagnið og hitann, fer svo og stend nakin úti á plani þegar það kemur rigning þá þarf ég ekki að fara í sturtu, þurrka mér svo í feldinn á kettinum þá þarf ég ekki að þvo handklæðin mín, sel rúmmið mitt til að geta keypt mér penna í skólann og þá byrjar fjörið aftur! Ég leggst á gólfið og þið vitið restina!!!

Kveð með tárin í augnkrákunum, leggið endilega inn á bankareikninginn minn í landsbankanum

-Halla


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 19:14:34 / heilei

Já vitir menn!

Já eins og vitir menn segja þá sit ég hérna heima á rassgatinu eftir rosalegan vinnudag að vanda! Nei nú skal ég segja ykkur fréttir, það er EKKERT að gerast í búllunni! Þreif háfana hátt og látt og veggina í eldhúsinu og svonna þrátt fyrir það að vera lasin þá drattaðist ég í vinnuna klukkan 8 í morgun! Harkan í manni!

Varð nú samt hálf nett í skapinu í dag þegar nýtt vaktaplan kom upp og ég var sett á bleika vakt ( að þjóna uppi á Lindinni ) EIN!!!! og vitir menn ég þurfti að fara upp klukkan 3 - 4 líka í dag! Já það er erfitt að skipta yfirmennina svona miklu máli þarna:lol:haha

Núna gengur þetta ekki! ég ætla að kaupa mér tölvu og er sjálfsagt búin að finna alveg frábæra tölvu, enn látum nú jón um það að finna rétta gripinn handa mér, þá get ég líka kennt honum um ef eitthvað bilar og sagt " þú sagðir mér að kaupa þetta " ;)

Einnig er ég að spá í að fara að setja þessar blessuðu myndir mínar inn sem hrúgast upp í fælum í tölvunni sem er að gefa upp öndina líkt og bláa ópalið gerði! HVAÐ VARÐ UM BLÁTT ÓPAL???

Þessi skrambans peningamál alltaf hreint! Mig langar í svo mikið! eða langar og langar ekki, mig langar öllu heldur að gera svo mikið! Mig langar til að gerast kaupandi af tölvu, mig langar á námskeið sem kostar ekki nema 20 þús kall og mig langar til sólarlanda því nú er farið að kólna allsvakalega í veðri og vindum. Þetta veitir ekki á gott því peningar kalla á vinnu og ég ætla ekki að vinna með skólanum. Þegar við snúum okkur að skólanum þá er ég ekki alveg viss hvað ég ætla að læra, enn eitt er á hreinu, ég verð ekki í sjoppubúllum til æviloka.  Ég áttaði mig á því fyrir stuttu síðan að ég er að fullorðnast, ég er að fara í menntaskóla og þarf að skrifa glósurnar mínar sjálf, nú þýðir ekkert að segja " Sigrún viltu ekki bara setja glósurnar upp ! " nú verð ég að gera allt sjálf, ég fer brátt að bruna um bæjinn á litlu tryllitæki er kallast bíll og borga það mest allt sjálf því ég var svo vittlaus að djamma og djúsa þegar mér bauðst samningur gegn því, enn sé samt ekki mikið eftir því. Sættum okkur við þetta árgángur 1990 á Akureyri, nú verðum við litlu ljótu busarnir enn ekki grimmu unglingarnir í 10.bekk sem ráða öllu! OG MIG HLAKKAR TIL!!!!

Já aldrei að vita nema næsta blogg verði í nýrri tölvu, dammdamm damm:haha:

-Halla Bjalla


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 21:29:40 / heilei

Hjemm

Halla og Jón eru komin heim.

Jamm forum i skipið á þriðjudaginn í Bergen og silgdum til Hjaltlandseyja um nóttina þar var stutt stopp og síðan var haldið áfram til Færeyja. Þegar við komum til Færeyja daginn eftir var skoðað sig um og röltað í búðir og svonna.... þessir færeyjingar eru nú svoltið ruglaðir, þeir voru nokkrir í skipinu og jeminn þeir kunna sko að skemmta sér eða ja hahahh...

Maturinn í skipinu var æði!!! Risa hlaðborð, gast valið þér súpu og brauð, allskonar fiskrétti eins og fisk, humar, rækjur, skelfisk og margt annað sem ég hef andstyggð á því ekki borða ég mikið af svona sjávarfangi:S Enn svo var líka margt annað eins og allskonar skinkur og pottréttir, svínarif, kjúklingur, pizzur, kartöflur af mörgum gerðum og lambakjöt,´nautakjöt og svínakjöt og sósur með. Eftirréttirnir voru allskonar hlaup, marenstertur, jógúrtkökur og ég veit ekki hvað og hvað! Engin furða þótt maður hafi þurft að fara að hlaupa snemma í morgun til að hrista allt af sér eftir þessa ferð, því við Jón keyptum fullan haldapoka af nammi :!: Þótt að mikið af því hafi ekki bara verið handa mér og honum:lol:

Enn svo var sundlaug þarna og það var geggjað að skella sér í hana, öldugangurinn var svo mikill þarna niðri að vatnið var allt öðru megin í lauginni og svo allt í einu var það allt komið í hinn helminginn enn þau var hinn helmingurinn orðinn tómur haha:!: Svo var nú ekki slæmt að sitja upp á dekki og horfa á sjóinn og einstöku sinnum sá maður hval eða höfrumg skjótast upp úr svörtum sjónum... og ekki má gleyma því að barinn var þarna til staðar;)

Enda síðasta kvöldið var mjög skemmtilegt, við Jón sátum uppi á dekki og vorum að spila og fá okkur einn eða tvo bjóra, svo þegar við vorum að fara niður í káetu seinna um kvöldið þá er kall að fara í slípið líka og hann labbar á vegginn og segir OÓ!! og svo tekur hann eitt skref áfram og dettur útaf skipið vaggaði svo og hann pissfullur og stoppar og segir OÓ!! svona labbaði hann í herbergið sitt HAHA:haha:

Enn svo var vaknað snemma um morguninn því við komum 8 að morgni til á íslenskum tíma til Seyðisfjarðar og við þurftum að fara úr káetunni hálftíma fyrr og auðvitað að fara í sturtu og svonna þannig að við vorum vöknum milli half 7 - 7:^) Svo var að fara í geggnum tollinn og vá hvað það voru margir teknir og þeir þurftu að tæma bílinn sinn alveg og opna allar töskur og allt fyrir löggumönnunum, eeenn ekki við:haha:

Annars er dagurinn í dag búinn að vera mest leiðinlegasti dagur sem ég veit um!! Byrjaði ágætlega þar sem að ég labbaði heim til min klukka 8 í morgun og vakti helga bróður og við fórum í ræktina enn svo heim að laga til og taka upp föt og ganga frá drasli og þvo þvott og svonna.... laga til í herberginu, ryksuga, þurka af og skúra! Þvoðum nýja bílinn hennar Nönnu sem er aaaaalgjör kaggi;) Enn mér tókst að fá hurðina beint í puttann á mér og nöglin mín brotnaði af og hluti af minni raunverulegu líka enn ég næ ekki hellvítisgelinu af þannig að ég er með hálfa gelnögl:frown: Enn aldrei að vita nema maður kíkki á rúntinn eða í bíó á eftir:)

Fer að vinna á mánudaginn aftur á fullu:!:  Enda á ég næstum ENGA peninga og verð ekki að vinna með skóla í vetur:frown: Mamma vildi ekki hafa mig vinnandi og lærandi í vetur þannig að ég ákvað að létta á hugarangri hennar og láta þau borga allt fyrir mig í vetur, litla pabba stelpan jájá ég veit:!::$

Enn stelpur ein tillaga, við ættum að hittast allar og reyna að gera eitthvað núna fljótlega, allar að fara í sitthvorn skólann og bekkinn, ég verð held ég ekki með neinum sem ég þekki í bekk:cry: Hittumst fljótlega allavega og látið svo í ykkur heyra;)

-Halla

P.s myndirnar frá Sverige koma fljótlega fer að setja þetta inn:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 22:51:42 / heilei

Verlsa Versla og Verlsa!

Aftur var farið í bæjinn í dag!! keypti nú ekki svo mikið enn samt nóg... fórum í Stadium og ég keypti mér íþróttabuxur, bol við og íþróttatopp svo eitt stykki regnhlíf þar sem að það var rigning. Svo keypti ég mér kápu, rosa flotta;) Í gær skelltum við okkur til Ö-vik þar sem var farið í Paradisbadet, fullt af rennibrautum og læti... ný búið að byggja nýja rennibraut og svonna, Pési vann alltaf í öllu, eða svo heldur hann, vill ekki viðurkenna annað:lol:

Á morgun verða líklegast bara rólegheit, ætla að sýna Jóni þorpið og fara upp á útsýnispall og svonna... skoða hænurnar frægu síðan í fyrra;)

Skemmtið ykkur svo bara vel í vinnunni stelpur mínar, örugglega mjöööög gaman í Leirunni núna;) Sakna þess ekki baun að vera þarna :haha:

-Halla


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 08:41:53 / heilei

SVERIGE!!!

Já nú er ég stödd í Svíþjóð og líkar bara mjög vel, fórum af stað klukkan 3 að nóttu til og komum á leiðarenda um 00:00. Í Marsliden var stundað ströndina af mikilu magni þar sem að hitinn hér fer ekki niður fyrir 20c og hefur mest farið í einar 26 - 7c. Pési hefur ekki ennþá séð neinn björn enn keypti sér til öryggis eitthvað samúræja sverð og tvær afrískar grímur til að geta ráðist á björninn, semsagt við fórum í bæinn í gær að versla.

Núna erum við svo á leið til Ö-vik og ætlum að skella okkur í Paradise-badet sem er svona vatnsrennibrauta park eitthvað, fór síðast þarna þegar ég var 11 ára og það var mjög gaman:haha: Enn ég keypti mér skó, 2 boli, pils, klút, bikini og nærföt, armbönd, hringi og hárbönd.... svo förum við líklegast aftur í bæjinn a morgun;)

Enn stelpur mínar þið skemmtið ykkur vel þarna á Klakanum og vinnið af kappi meðan að ég sleiki sólina hérna og versla;)

-Halla


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 20:10:47 / heilei

Up the Djam !!!

Hverjir ætla að djamma um helgina????

Já gott fólk hér sit ég heima og sprikla um, alein í þessu " stóra " húsi....

Dagurinn er búinn að vera mjög nice, byrjaði á því að vakna við annað hanagal sem var klukkan 9 í morgun og þessi bongó blíða þannig að ég skellti mér út að hlaupa og svo í sólbað á pallinum og loks fór ég að ná í pakka sem ég var að fá sendann, Helga og Andri voru svo elskuleg að fara með mér og fengum okkur svo íss hjá Lilju ;)

Svo var farið í mjólkurbúðina og skroppið í ljós og stefnan er svo bíó í kvöld;)

Ef ykkur langar að gera eitthvað annað kvöld heyrið þá endilega í mér, aldrei að vita nema að það verði eitthvað að ske og maður skreppi út;)

-Halla ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 12:41:19 / heilei

Suuumar!!

Loksins tekur lífið við! Hér sit ég heima og sólin breiðir út geisla sína. Það verður gaman um helgina og stelpur það verður gaman!!!  Því miður hafa Lilja og Hildur engann áhuga á því að koma því að Lilja ætlar sér að passa og verða gömul kona þetta kvöld og Hildur ætlar til Noregs að gerast norðmaður og tala með miklum hreim! Enn við látum þetta nú ekki á okkur fá og eigum eftir að skemmta okkur konunglega þrátt fyrir þessar sorgarfréttir

Tinna kemur alla leiðina frá Egilsstöðum til að fagna með okkur....;)

Helgan mín er búin að plana eitthvað allsvaðalegt og ætli hún verði ekki hress með blöðrur og hatta og svonna HAHA:haha:

Allavega þá sagði ég upp í Leiru eins og svo margar aðrar:!: Ég hætti semsagt í september og ætla þá að einbeita mér að skólanum... það verður nú svoldið skrítið að þurfa ekki að vinna með skólanum og svonna:S Enn örugglega líka mjöööög gott að geta gert það sem maður vill;)

Heyj smá móment í vinnunni sem skeði um daginn... ég var semsagt að vinna uppi á Lindinni og er að segja frá rétti dagsins sem er steiktur steinbítur enn þetta voru útlendingar 4 strákar og ég segi Todays spessyal is fried stonebite, og auðvitað fóru allir að hlæja !!!

Enn ef eikker á myndavél sem kemur hingað á laugardaginn þá komið með hana!!!!

-Halla


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 20:49:32 / heilei

blogg blogg

blogg blogg... ákvað svona rétt einu sinni að láta ykkur vita hvað á daga mína hefur frifið, sem er ekkert rosalega mikið. Helstu fréttirnar eru þær að ég hef ekki mátt vinna í viku! Ástæðan er sú að ég var í vinnunni síðastliðinn fimmtudag, var frekar spæld því á fimmtudagskvöldum er Footballers wife's! enn svo rétt eftir matartímann minn var ég að skera tómata og skar í puttann minn, fyrst hélt ég að þetta væri nú ekki neitt og setti bara pappír yfir sárið enn svo kom þessi heljarinnar skurður í ljós og ég fór inn á bað til að þvo blóðið af enn það virkaði ekkert svo á endanum hneig ég bara niður inn á baði enn Aðalbjörg var svo góð að henda mér upp í bíl og beint á slysó. Enda voru saumuð nokkur spor og látið mig hafa vottorð og ég mátti bara ekki vinna í heila 6 daga!

Sem betur fer þá losna ég við þessa sauma á morgun og fer þá back to work! Verð að vinna alla helgina enn læt það nú ekki aftra mér frá því að mæta galvösk í teiti með stelpunum á laugardaginn, Ella var svo góð að heyra í mér í kvöld og taka morgunvaktina mina á sunnudaginn og láta mig um kvöldið;) Svo hér er um miklar gleðifréttir að ræða STELPUR ÉG KEM AÐ DJAMMA!!!! Ótrúlegt að ég hafi nokkurn tíma til þess!

Jarðaförin hjá Heidda var hreint út sagt ótrúleg! Það voru um 300 hjól sem fylgu honum og vá hvað þetta var hjartnæmt og flott!! Votta öllm mína dýpstu samúð.

Enn er ég ekki komin með vaktaplanið fyrir versló:^) Væri alveg til í að fara að fá það sem fyrst!! og eins gott fyrir strákana að koma ekki með 16-04 vaktir! Ég segi upp ef þær verða svoleiðis!! Verð frekar atvinnulaus enn að vinna svoleiðis vaktir! Var að fá að vita það að þessir 3 mánaða uppsagnafrestur sem þeir segja að sé er bara rugl! ég hef víst ekki skrifað upp á neitt svoleiðis að ég má hætta þegar ég vil. Þótt mig langi það nú ekki mikið enn ég nenni bara alls ekki að vinna 12 tíma vaktir á svona helgum, stelpurnar sem voru að vinna í 12 tíma um 17.júní voru dauðar eftir það, og mér finnst líka að fólk eigi að getað gert eitthvað smá þessa helgi:)  Eru ekki allir sammála því??

Var að fá sent heim reikning fyrir skólagjöldunum, 16.000 kall minn rass!!! Fyrir það að læra, jeminn eini ég ætla ekki að trúa þessu.... og þá eru allar bækurnar eftir, úfff! á þessu mómenti dó ég og á bara ein 4 líf eða svo eftir!

Hvernig væri nú að ég færi að setja inn nokkrar myndir svo hérna inn á??? Hvernig líst ykkur á það??

Fer að vinna í þessu;)

-Halla


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 11:53:18 / heilei

Jamm og jæja!!

Já nú var ég bara að skríða framm úr rúmminu! Enda hef ég fullan rétt á því þar sem ég er alltaf búin hálf 12 og í gær var svo mikið að gera að við komumst ekki heim fyrr enn um 12 leytið!!

Ennnn það sem á daga mína hefur drifið, þá er ég LOKSINS orðin 16 ára;) Ég og Ella fengum svona súkkulaðiköku sem var hrá að innan frá Matta kokki í vinnunni, ekkert smá gott:haha: Svo er planið að fara í útilegu um helgina;) Er í fríji laugardag og sunnudaginn, veit ekki alveg hvert við förum:S

Mjög gaman að segja frá því að kassakerfið hrundi ALLT í gær! Gátum ekki einu sinni notað gömlu posana á tímabili og það fór allt í steik! þurftum að skrifa allt niður og setja svo inn í kassana að lokum! þetta var skelfilegt, enn einni tókst þó að halda ró sinni og hló og hló að þessu og fannst þetta skemmtilegt. Ekki var það ég því ég roðnaði niður í rassgat þegar ég var að skrifa allt niður og ruglaði öllu saman og jeminn hvað þetta var erfitt! :^)

Kanski maður fari að henda sér í sturtu og horfa á nágranna og fá sér að borða, vinna klukkan 16-00 í kvöld, ætli maður fari ekki að betla um far eins og venjulega:frown:

-Halla


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 17:04:50 / heilei

Vinna?

Vinna vinna og aftur meiri vinna! Er búin að vinna eins og ég veit ekki hvað! Enn brátt tekur 2 daga frí við:haha:

Enn já ég er ekki svo lítil lengur:haha: Útskrifaðist úr Sideskúl;) Sótti svo um í MA og komst inn8| Hlakkar ekkert smá mikið til að byrja!!!!

Annars er ósköp fátt að frétta, blogga voðalega lítið núna þar sem að ég er ALLTAF að vinna til svona 12 eða 02 á kvöldin! Geggjað gaman! Enn þetta fer nú vonandi að lagast! Svo er ég að hugsa um að kaupa mér tölvu, vantar eitt stykke eimitt núna! Sé til hvað ég fæ mikið útborgað, alltaf er þetta svona um leið og ég fæ peninginn þá er ég búin að eyða honum og helst fyrirfram!!:evil: Svona er þetta bara.

Svo á að reyna að hafa staffadjamm um helgina ef við fáum einhverja til að vinna fyrir okkur um kvöldið.... það er heldur erfitt enn má reyna á það;) Svo styttist alltaf í það að maður eygi afmæli!! 2.júlí!!!!!! Það er dagurinn;) Svo förum við Jón út 8 eða 9 ágúst! :haha: Hlakkar til að sjá krakkana og svonna;)

Enn í kvöld ætlum við út að borða við Jón og hafa það bara nice;)

kem vonandi bráðlega með myndir og svonna ;)

-Halla


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 15:10:32 / heilei

HaLLÓ!

Ég er búin með samrændu!! Gekk alveg ágætlega, held ég nái flest öllu alveg:)

Allavega þá eru allir búnir að plana alveg rosalegt djamm þannig að maður spyr sig??

Kanski fer ég suður á morgun, hver veit:) Veit bara ekki alveg hvað ég ætti að gera þar.. langar líka geggjað mikið til að heimsækja kennarana á sunnudagsmorguninn. Maður verður bara að fara að ákveða sig! 8| Allavega hitta krakkana eitthvað svo á hún Elfa afmæli, til hamingju með það skvís;)

Svo eru ma og pa bara alveg að fara að fara út! Og það þýðir bara það að ég fylgi eftir þeim mánuði síðar og mig hlakkar svo mikið til!!!!

Óvissuferðin var GEGGJUÐ! svaf ekki nema í svona hálftíma afþví að hellvítið hann Oddur skvetti á mig vatni þegar ég var alveg að sofna og ég gat ekki sofnað aftur!! Takk Oddur :klikk: Enn það var krotað framan í sofandi fólk og Elfa fékk nú að kenna á því , stelpan vaknaði með tippi framan í sér HAHA!  Svo fóru margir í sund klukkan 6 um morguninn, hressir? Enn ja svo fengu margir marbletti og höfuðverk og jafnvel heilahristing og hnémeiðsli uppá Kaldbaki... þessi snjótroðari var nú ekki að standa sig! hann hefði verið fljótari að taka helminginn fara með hann upp og síðan aftur niður og ná í hina!!  Læt þetta gott heita, Kristín farin að ýta á eftir mér í ljós;)

-Halla

-Halla


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 21:15:24 / heilei

PRÓF!!

Já nú var það hún Tinna sem fékk mig til að setja inn eina færslu!

Málin standa svoleiðis í dag að ég er búin að vera að læra á trilljón! Fékk mér frí úr vinnu í næstum heilan mánuð til að einbeita mér bara að prófum og slíku:S Hlakkar til að vera búin í þeim! Enda ætla ég svo að dekra við mig eftir þau, fara í ljós, litun&plokkun og neglur, aldrei að vita nema maður fái sér nudd eða slíkt með;)

Var annars að vinna á fimmtudaginn og var nú ekki í sérstaklegu góðu skapi þar sem búið er að lengja opnunartímann og ég fékk að vita að það gæti verið opið til 4 að nóttu um versló!!! Ég verð POTTÞÉTT látin vinna mikið og lengi bara afþví að þetta er ég:$ Svo varð ég líka að hafna vinnu núna um helgina afþví að ég þurfti að læra, margir ekki ánægðir með það, þar á meðal ég! vinna er jú alltaf peningur, og manni vantar alltaf peningi fyrir fötum;)

Svo eru bara rúmir 3 mánuðir þar til að við Jón Pétur förum út, hlakkar svo til að hitta allt liðið aftur:haha: finnst vera svo stutt síðan ég kom heim samt:S Fyrir einu ári var ég að klára 9.bekk og fannst ég vera svo stór, enn nú fer ég að fara í MA ef ég næ inn og enginn grunnskóli lengur:S Tíminn hefur svo sannarlega liðið hratt!

Það er orðið svo stutt í að ma og pa fari út! Er að hugsa um að halda bara upp á afmælið þegar þau eru farin út, hvernig lýst fólkinu á það? HA stelpur? Er það ekki grill þá og svonna notalegheit;) Þetta verður þá í kringum versló, rétt fyrir það örugglega afþví að ég þarf pottþétt að VINNA! Eins og ég sagði áður, bara afþví að þetta er ég! Ekki gaman að vera yngst, já hún djammar náttúrulega ekkert og þarf ekkert að hitta vini sína, hringjum í hana bara!  Neij annars þá er ég ekkert svo viss:) Meiri peningur bara þá:) Er alveg sama á meðan að ég er ekki að vinna ALLA versló:)

Annars þá kveð ég bara í bili og já ég fæ útborgað á morgun og vá hvað ég ætla að fara að kaupa mér eitthvað:haha:

-Halla Bjalla


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 15:13:29 / heilei

ÉG ER SVO ÁNÆGÐ!

Verð að byrja á því að óska Helga og Nönnu til hamingju! Helgi stóð sig ekkert smá vel í Vaxtaræktinni, þrátt fyrir að hafa ekki komist á pall þá stóð hann sig svo vel! Missti 32 kíló frá því í októmber! Geri aðrir betur! Og Nanna stóð sig ekkert verr, hafnaði í 2.sæti og fór á pall og fékk þennan flotta bikar og stóra páskaegg! Ekki má svo gleyma að hún var þriðja í þrautabrautinni og önnur í samanburðinum! Svo tók Helgi helgina með trompi og fór á hnéin í snjónum í listigarðinum og Nanna með þennan svaðalega hring á hendinni! :haha:

Svo er kjella ein heima bara og það verður nice helgi þar sem ég þarf að vinna alla helgina og læra og læra fyrir samrændu:( Svo ætlum við Pési að borða góðan mat á laugardagskvöldið því að á sunnudaginn verðum við búin að vera saman í heilt ár;)

Því miður fór hann núna upp á Spýtala til að fá gifs því að aumingja flónið er brotið eftir veltuna á crossaranum!:frown:

 Helgi bróðir stóð sig eins og hetja í þessari svaðalegu skýlu !!

 

Double bicep

 Sæta Sæta Nanna ekkert smá flott í blönduðu bikiníi

 Ooog bolurinn

 1. 2. og 3.ja sæti... Hún stóð sig svo vel :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4